Hvaða helvítis??

   

<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31


Hlekkir: Gott fólk í kringum mig

Aldís Fjóla
Ingibjörg Sykurtútta
Dötti riðlingsfés
Elsa
Jakob
Hlynur Ben
Heiða
Hafþór
Berglind Ósk
Frosti H.C.
Valli Djöfull
Rósa systurdóttir
Magnúsunna

Skólatengt

Aldís skvísa
Soffía
Hagfræðifjelagið

Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:

blogdrive

Dec 12, 2007
Slitrótt blogg

Jæja, komin 2 comment á síðustu færslu, þá blogga ég á ný.

Ég sit sveittur í próflestri, búinn með 2 próf, á 2 eftir og 1 heimapróf. Það er stuð.

Þann 9. des. síðastliðinn var systurdóttir mín ausin vatni og færð í kristinna manna tölu. Þetta var falleg athöfn sem haldin var heima hjá tengdarforeldrum Sunnu systur. Stúlkan hlaut nafnið Emilía Snæbjörg og ríkir almenn sátt um það enda gríðarlega fallegt nafn. Ég stoppaði þó alltof stutt í veislunni því ég þurfti að halda áfram að undirbúa mig fyrir próf sem var daginn eftir.

Dagskráin í jólafríinu er að verða þéttskipuð. Ég ætla að hitta alla, spila mikið af músík með nýju hljómsveitinni minni Svartasker sem er að sigra heiminn með undurfögrum tónum og ljóðrænum textumn, lesa bækur, knúsa Svíþjóðarfjölskylduna og það er eins víst að ég verði beðinn um að vinna eitthvað sem væri ekki amalegt, því fyrir undarlega menn eins og mig er fátt betra en að grípa í rútubíl öðru hvoru.

Nú, síðan ætla ég að tjá mig um feminista. Ég er eiginlega hættur að pirra mig á þessu, þetta er ekki orðið neitt nema fyndið. Núna er búið að kæra visa-ísland eða innheimtufyrirtækið eða e-ð svoleiðis, fyrir að gera mönnum kleift að versla klám. Það er nefnilega andskotans það. Það var að vísu ekki feministafélagið sjálft sem kærði, heldur öryggisráð feministafélags íslands. En kreditkortafyrirtækin hljóta bara að vera vandamálið, það sér það hver heilvita maður, lokum á þau og staðalímyndir eru úr sögunni. Æ nei þetta er einföldun, auðvitað er þetta bara hluti af vandamálinu, við þurfum líka að sniðganga Silfur Egils fyrir að vera ekki með jöfn kynjahlutföll (af því að hver kvenkyns þingmaður þarf að koma 3 sinnum fyrir hvern karlkyns, annað er bara óréttlátt) stofna eigin sjónvarpsstöð með stjórnmálaskýringum og meina karlmönnum aðgang, hætta að klæða börn í bleik og blá föt, fá kvenkyns jólasveina, koma á kynjakvóta og þar með gera kyn eitt og sér að ráðandi faktor lögum samkvæmt í nafni jafnréttis kynjanna og gera grín að útreikningum tölfræðidoktora af því það hentar ekki okkar umfjöllun um launamun kynjanna. Allt þetta hlýtur að koma friði á þessa umræðu og gera alla ánægða.... eða hvað?

Æ þetta er djók. Mæli síðan með því að þið kíkið á nýjustu færsluna hjá uppáhalds feministanum mínum Sóleyju Tómasar, þar sem hún sýnir Stekkjastaur koma til byggða til að heimta jöfn laun kynjanna. Af því að jólasveinarnir eru pólitískt réttþenkjandi baráttumenn fyrir siðferði og kröfum feminista............. eitt í viðbót

 

 

LÁTIÐ JÓLASVEINANA Í FRIÐI!!!!!!!!!

Góðar stundir.


Posted at 01:57 am by doddi
Comments (3)

Nov 21, 2007
Dötti á ferð og flugi?

Bíddu... Dötti, varstu í Bandaríkjunum??

Posted at 12:59 pm by doddi
Comments (3)

Oct 29, 2007
Í tilefni dagsins

Jæja og já. Nú er ég orðinn 25 ára, kvarteitthundrað, hálfþrítugur.

Í tilefni dagsins mætti ég á réttum tíma í tölfræði 2.

En þar að auki hélt ég heljarinnar partý heima hjá mér á laugardaginn, sendi þau gömlu út í sveit og bauð undarlegri blöndu vinahópa héðan og þaðan í gleðskap. Óhætt er að segja að vel hafi til tekist. Fólk var í feiknafjöri, bondaði og kjaftaði og allir opnuðust enn meir er drykkjuleikur tók völdin. Margar góðar gjafir fékk ég, svosem afmælisköku þar sem einu sinni stóð 25 en það var örlítið máð, tannkrem, búnað til að búa til kertaafsteypu af félaganum, fíla g-streng og margt fleira.

Hæst bar þó gjöf frá stórum hópi fólks, sem, eftir frumkvæði Dötta, gaf mér forláta Godin rafmagnsgítar. Þetta er vönduð græja sem yndislegt er að spila á og kann ég þessum hópi bestu og mestu þakkir. Takk öll!! Þið vitið hver þið eruð. (ég man það ekki nákvæmlega og kortið er heima.... afsakið, skammskamm doddi)

Fyrr um þennan dag hélt Chuck-cup keppni í Kubb, eftir bráðabana og fjölda bjóra stóð undirritaður uppi með silfur.... einhver gaur vann, skiptir ekki máli.

í gær kom svo Berglind systir með man og ómegð í minn uppáhalds mat. En sökum ógnvænlegrar þynnku átti ég erfitt með að borða eins og ég er vanur. Í kvöld eru afgangar thank god.

Að lokum, takk öll fyrir kveðjurnar og allt það, alltaf gott að fá kveðjur og hilsen.

Kveðja: Þórður Ingi Guðmundsson, á ekkert að fara að fullorðnast?


Posted at 10:12 am by doddi
Make a comment

Oct 23, 2007
Langt um liðið

Jæja, kominn tími á þetta, ætlaði að halda þessu við.

Ég fór til Svíþjóðar til að skoða nýtt barn og Svíaríki. Vel hefur tekist til með nýja barnið hjá þeim Magnúsi og Sunnu systur og er stúlkan hin efnilegasta. Júlía stóra systir hennar var spræk og lét frænda sinn lesa fyrir sig bæði á íslensku og sænsku. Þau Maggi og Sunna eru höfðingjar heim að sækja og fór vel um mig á heimili þeirra, allavega kom ég ekki grennri heim. Eyddi einnig miklum fjármunum í föt og Ipod og þarf nú að finna úr því hvernig í fjandanum ég fer að þvi að borga af bílnum í vetur.

Núhh, þegar ég kom heim tók við lærdómur (eftir að runnið var af mér, það var fjör í fluginu), og er alltof mikið að gera í heimaverkefnum í þessum helv. valkúrsum, maður hefur ekki tíma til að læra.

Jæja... andleysið er algjört, nenni ekkert að skrifa, mun setja inn meistara bloggfærslu innan tíðar, þegar ritandinn er kominn yfir mig.


Posted at 02:56 pm by doddi
Comments (1)

Oct 3, 2007
Gefið ykkur tíma.....

... og horfið á þetta, hvort sem þið eruð sammála eða ekki, og skiptir ekki máli hvað mér finnst, en þetta eru athyglisverðir punktar.

Bill Maher um feminisma


Posted at 08:31 am by doddi
Make a comment

Sep 29, 2007
Almennt

Ja sælinú.

Lítið hef ég að segja ykkur/þér, en mig langar þó til að segja ykkur frá því að ég fór á tónleika nú nýlega. Sá þar spila Royal Fortune og Benny Crespo´s Gang.

Royal Fortune er hljómsveit sem ég hef ekki séð áður og vissi því ekki við hverju átti að búast en miðað við þá hljómsveit sem kom á eftir átti ég von á kröftugu rokki. Það reyndist þó ekki svo vera. Hljómsveitin leikur lágstemmda músík og notast við hljóðfæri eins og kontrabassa, banjó og fleira. Athyglisverðar pælingar, skemmtileg uppbygging og metnaðarfullur söngur og raddir komu mér skemmtilega á óvart, hvet fólk til að kynna sér þessa hljómsveit nánar hér

Næst á svið voru Benny Crespo´s Gang, þá hljómsveit hef ég séð margoft og er forfallinn aðdáandi. Von er á plötu í október mánuði og Dötti veit alveg hvað ég vil í afmælisgjöf. B.C.G. spilar kröftugt rokk í anda at the drive in og fleiri hljómsveita, hljóðfæraleikur er allur til fyrirmyndar og sat ég hálfdáleiddur og starði á rytmapar hljómsveitarinnar, eins og ég geri reynar alltaf á tónleikum með þeim. B.C.G. getiði kynnt ykkur nánar hér

Nú, í gær var rólegheitakvöld yfir einum bjór, í dag og í kvöld hins vegar verður haldið í Víðihlíðina, Unnar Öskjulærdómsfélagi og íslandsferðafélagi er 25 ára í dag, fær hann sturlaðar stuðkveðjur og hamingjuóskir ásamt því að hópurinn fer í Víðihliðina að samgleðjast með honum. Ánægjulegt að hann hafi viljað eyða þessum degi í sveitinni í góðra vina hópi.

Læt þetta duga að sinni.


Posted at 04:12 am by doddi
Make a comment

Sep 21, 2007
OMG OMG SKILLURRRU

Ég var þúst, ýkt að koma heim með strætó og þúst, bara chilla ekkað skillurru. Hurru, svo var minns bara ýkt að horfa út um gluggan eða ekkað skillurru, bara, þúst, chilla. Og er þúst, að horfa bara, ekkað. Og lít út og sje bara geggjað ekkað, lögguna bara með ljósin og íúíúíú!!! ekkað hehe skillurru, og ég bara ÓMÆGOOOOODDDD LÖGGAN !!!  en neinei, þá þúst. sá ég bara það sem gerði mig ýkt happý bara.

Löggan bara ýkt að stoppa LEIGARA SKILLÖÖÖRRRRÖ ooohh ómægod löggan að stoppa taxa, ég er bara þúst, ýkt happý skillurrru.

Massafín vísindaferð samt, Straumur á hrós skilið...... hvar er bjórinn minn??


Posted at 05:11 pm by doddi
Comments (1)

Sep 17, 2007
Í fréttum er þetta helst.

Allt að gerast.

Í fyrsta lagi, ég er búinn að eignast nýja frænku. Sunna systir fæddi á dögunum gullfallega stelpu. Hamingjuóskir til Sverige. Í framhaldinu bókaði ég mér flug til Stokkhólmsborgar þann 5. okt. þar sem sjálfstætt mat á afurðinni fer fram, stöðluð próf framkvæmd og niðurstöður kynntar síðar meir eftir eðlilegt ferli.

Í öðru lagi, Chuck Cup keppnin í Víðihlíð fór fram síðastliðinn laugardag í roki og slyddu. Þeir keppendur sem höfðu valið sér efnislitla búninga sáu eftir þeirri ákvörðun, nema Valli sem fékk búningastigin. Undirritaður gerði sér lítið fyrir og grýtti staurnum þvert yfir bílastæðið og tók síðan helluna og fleygði henni aftur fyrir haus langleiðina á Flúðir.

   Undirritaður undirbýr sig vandlega

Eftir að stigin höfðu verið lögð saman eftir þessar 2 greinar kom í ljós að 3 menn deildu þremur efstu sætunum. Dolli tröll var farinn þegar þetta lá fyrir og hafnaði því í 3. sæti. Ég og Óli rauði tókum okkur því til og kepptum í símastauraburði þar sem markmiðið var að ganga sem lengst með staurinn á öxlunum. Óli fór fyrstur eftir að hafa tapað í hlutkesti og setti því viðmiðið. Fór síðan og bætti það og gekk frá staurnum og stóð uppi sem sigurvegari hálandaleika Chuck Cup.

Í þriðja lagi, þó svo að ég hafi ekki komist í göngur og réttir eins og vonir stóðu til fékk ég þó að smala. Inn á landareign Víðihlíðar slapp rolla með 2 kindur. Ekki er það hentugt þar sem mikil trjárækt hefur hafist í Víðihlíð og er á viðkvæmu stigi, því gætu rollurnar hæglega skemmt fyrir. Var mannskapurinn því ræstur út til smalamennsku og tók á rás upp holtið á eftir rollunum. Veðrið auðveldaði ekki verkið, stíf norðaustan átt og slydda, en við erum karlmenn og leystum þetta verkefni auðveldlega, ef svo má segja. Óli rauði fann m.a.s. tíma til þess að rífa niður um sig og hlaupa pinnstífur á eftir rollunum, framhaldið er ritskoðað.

Í fjórða lagi, ég á að vera að fylgjast með í vinnumarkaði. Kveð að sinni.


Posted at 06:55 am by doddi
Comments (5)

Sep 11, 2007
New entry

Jæja, nú dugir ekkert slór lengur, fjandinn hafi það. Ætla mér að byrja aftur að blogga, hvort það stenst í þetta skiptið er svo annað mál. Hef víst lýst þessu yfir áður.

En ég er upp í skóla, Bankar og Peningar eiga hug minn óskiptan þessa stundina (kúrsinn heitir það)

Yfirvofandi er Chuck-Cup. Fyrir þá sem ekki vita er það félagsskapur glæstra karlmanna sem hittist ca. einu sinni í mánuði og keppir í einhverri íþróttagrein. M.a. hefur verið keppt í pool, pílukasti, bocchia og fleiri íþróttum. Engar kellingar eru velkomnar á þessar keppnir. Enda ekkert fyrir kellingar, þetta er fyrir karlmenni. Að vísu hafa tveir menn gerst sekir um að brjóta þessa reglu. Óli rauði hefur boðið smápíkum að koma og horfa á, fullþroskuðum og tömdum karlmönnum til ama og engrar ánægju. Enginn reyndi að ná athygli þeirra með vöðvahnykkli eða öðru, enginn.

Annar sem hefur þverbrotið þessa reglu ítrekað er amorinn og harðgifti graðnaglinn Hjörtur Rafn sem virðist ekki getað séð sóma sinn í því að slíta sig frá kellingu, takið eftir því að þetta var ekki ritað með ákveðnum greini.

Um næstu helgi verður haldið á ættaróðal fjölskyldunnar og keppt í Hálandaleikum hverskonar. Keppnin fer fram á laugardeginum en á föstudagskvöldinu er réttarball í Árnesi, sem er þarna rétt hjá, með Á Móti Sól. Geti Hjörtur ekki reddað miðum í gegnum rokkstjörnuna og frænda sinn í báðar ættir verð ég brjálaður. Einnig hef ég einhliða ákveðið að sá sem gerist sekur um að draga kvenmann á staðinn verði refsað með því að banna kvenmanninum að neyta áfengis og skipa henni að keyra okkur til og frá ballinu. Einnig verður kvenmanninum gert að sofa í forstofunni með hundinum (go doggy go).

Jæja, læt þetta duga sem endurkomu mína í bloggheima á ný.


Posted at 04:28 am by doddi
Comments (1)

Jul 24, 2007
Ég er á lífi

Bara að halda þessu lifandi, má ekki gefast upp o nei o nei.

Helst í fréttum, vinna, vinna, vinna, vikufrí og hringferð með snilldarfólki, vinna og næst á dagskrá, vinna og sumarpróf.

Sit hér í fartölvunni minni í hálendismiðstöðinni í Hrauneyjum, þráðlaust alnet er víða.

Jæja, vinna.


Posted at 02:03 pm by doddi
Make a comment

Next Page