Hvaða helvítis??

   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


Hlekkir: Gott fólk í kringum mig

Aldís Fjóla
Ingibjörg Sykurtútta
Dötti riðlingsfés
Elsa
Jakob
Hlynur Ben
Heiða
Hafþór
Berglind Ósk
Frosti H.C.
Valli Djöfull
Rósa systurdóttir
Magnúsunna

Skólatengt

Aldís skvísa
Soffía
Hagfræðifjelagið

Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:

blogdrive

May 20, 2007
nýr bíll, próf, vinna og allt það

Sælinú, allt að gerast, búinn í prófum, búinn að fá úr 3, náði þeim en hefði samt mátt vera hærra. Byrjaður að vinna, brjálað að gera, ekki veitir af því ég var að kaupa mér bíl, gjörsamlega brilliant SAAB 95 árgerð 1999, lítið ekinn og lítur út eins og nýr.

Ca. svona lítur bíllinn út, þessi litur og útlit en aðeins öðruvísi felgur. Óhætt er að segja að ég er í sjöunda himni yfir þessu tæki og hvet fólk til að biðja mig um rúnt.

Þeir sem mig vita að ég elska SAAB, einfaldlega af því að þetta eru bestu bílar í heimi. Þetta er ákveðin þroski, vitneskja, eitthvað sem skilur okkur SAAB eigendur frá hinum, við vitum meira, Dötti skilur þetta. Líka konan sem ég keypti bílinn af, hún var að skipta honum út fyrir SAAB nr. 15 í röðinni, flott kona.

Vinnan er mikil, það er svo mikið af túristum hérna, og lítil börn verða að fá að skoða sveitina. Það er gríðarlega hressandi að vera byrjaður aftur að vinna, þrátt fyrir mikið álag er þetta alltaf jafn skemmtilegt starf, skemmtilegur félagsskapur.

Jæja, borða, bóna bílinn og e-ð, bið að heilsa.

Saab Only


Posted at 11:56 am by doddi
Comments (3)

Apr 14, 2007
Fallast hendur....

Nú í morgun, á leið minni í skólann, varð ég vitni að mjög pirrandi atviki. Lendi á rauðu ljósi á gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar, og er þar næsti bíll á eftir lögreglubíl sem var fremstur. Þar sem við lendum á rauðu kemur grænt ljós á þá sem ætla að beygja til vinstri upp Lönguhlíð. Þar er líka skilti sem bannar u-beygjur. Einn bíll er á beygjuljósunum en í stað þess að fara upp Lönguhlíð tekur hann u-beygju og brunar til baka Miklubrautina. Maður hefði haldið að lögreglan hefði nú skipt sér e-ð af þessu þar sem hún sat þarna í prima stöðu til að sjá þetta allt saman, og ekki var hún í útkalli. En neinei, þetta getur hún látið afskiptalaust en finnst nauðsynlegt að sekta mig um 10.000 krónur fyrir að keyra á 63 km. hraða á Nýbýlavegi!! (nei ég hef ekki ennþá gleymt því og já, ég er ennþá reiður)

Helv. djö.......

Jæja, læra meira.


Posted at 03:06 am by doddi
Comments (1)

Apr 13, 2007
Ungfrú.....

Horfði á hluta af ungfrú Reykjavík í gær, enda mikill áhugamaður um konur og kvenlega fegurð, enda karlmaður.

En eitt sló mig. Hvað er málið með útlitið á stelpunum? Er þetta afleiðing fjölgunar á snyrtifræðingum? Það að stelpur líti út eins og plaststykki með svart strik yfir augunum er bara ekki flott, þetta gervilega útlit með glansandi andlitsmálningu og yfirskömmtun á brúnkustöffi er bara ekki að virka, þetta var ekki svona fyrir nokkrum árum, þá var útlitið öllu náttúrulegra, þó svo að það sé ekkert ýkt náttúrulegt að rölta um á bikiníi og háum hælum, en mér er nokk sama um það. En svona plastdúkkumálning er bara ekki að gera sig, því miður.


Posted at 12:47 pm by doddi
Make a comment

Apr 11, 2007
Páska"frí"

Heil og sæl.

Í því sem ég sit í Öskju og reyni að glósa uppúr Þjóðhagfræði bókinni minni fannst mér tilvalið að blogga dulítið, því ég á gríðarlega erfitt með að einbeita mér.

Páskarnir eru nýafstaðnir, þeim eyddi ég að mestu heima í lærdóm, kvöldið fyrir skírdag fór í það að dæma 2 bjórtegundir, Rock og Asahi, með BjórBandalagi Björns Bjarnasonar, eða B.B.B.B.

Þess utan var ég bara að læra um páskana. Á páskadag kíkti ég reyndar á ættaróðalið í Víðihlíð þar sem stórfjölskyldan kom saman til framkvæmda og samveru. Sá stutti tími sem ég eyddi þar var ljúfur, enda alltaf gott að koma í Víðihlíð með góðu fólki.

Sunna, Maggi, Júlía og Tumi Þumall rokin aftur til Sverige en þau láta nú sjá sig aftur í maí. Ekkert svo langt þangað til.

Fyrsta prófið er 23. apríl eða eftir 12 daga..... tæpar 2 vikur...... FOKK.

Aftur að bókunum, takk og bless.


Posted at 04:44 am by doddi
Make a comment

Mar 18, 2007
Formúlan byrjuð össs

Formúlan byrjuð að rúlla og fór glæsilega af stað í Ástralíu

Hvað er samt málið með að hafa Finna á bakvið stýrið í Ferrari?? Þetta bara passar ekki. En það er nú samt alltaf jafn gaman að heyra Finna tala ensku, þetta er sennilega eini enski hreimurinn sem er fyndnari en sá íslenski.


Posted at 07:36 am by doddi
Comments (2)

Mar 15, 2007
Doddi útum allt á alnetinu

Það að Ingó, sem eitt sinn bjó á Egilsstöðum, skyldi bæta mér í vinasafn sitt á moggablogginu fyllti mig orku og sjálfsöryggi til að halda áfram að skrifa þar, en ég ætla samt að skrifa hérna líka. Hægfara yfirtaka á internetinu.

Slóð á http://thorduringi.blog.is 

En s.s. hér mun bitri, kaldhæðni, óþarfi og almenni doddi skrifa en restin af dodda mun skrifa á moggabloggið eftir því sem hann nennir.

Þetta endar náttúrulega bara með sálardauða og falli í öllum kúrsunum sem ég er í.


Posted at 07:44 am by doddi
Comments (1)

Mar 13, 2007
Ég hef ákveðið......

..... að koma þessu bloggi af stað aftur. Mig langar að blogga, hef bara verið of latur við það. Nú verður tekið á því fjandinn hafi það, ekki snúa baki við mér, haldið áfram að lesa, hér verður bloggað ég LOFA!!!

Posted at 07:47 am by doddi
Comments (1)

Dec 14, 2006
Gleði gleði gleði

Þvílík endalaus gleði, þvílík endalaus hamingja, uppáhalds hljómsveitin mín til margra margra ára er að koma til landsins, og ég er búinn að tryggja mér miða, það eina sem veldur því að ég valhoppa ekki niður Laugaveginn er sú staðreynd að ég er að fara í 3 próf á 4 dögum eftir helgina. Helv..........

Hver er annars að fara?? Hver kemur með??


Posted at 08:13 am by doddi
Comments (1)

Dec 11, 2006
Er gaman??

Prófgeðveikin er að ná hámarki, búinn að taka 2 próf, vona að það hafi reddast. Tölfræði 2 prófið var með þeim erfiðari sem ég hef séð. Ég hef annars voða lítið að segja þessa stundina og hvet ykkur bara til að hugsa fallega til mín.

Gangi mér vel.


Posted at 06:28 am by doddi
Make a comment

Dec 2, 2006
Núna má mamma allt....

... því hún á afmæli í dag. Margfalt húrra fyrir því.

Ég er hins vegar staddur í skólanum að læra fyrir prófin sem nálgast... og nálgast. Það þykir mér miður og ég er orðinn gífurlega stressaður fyrir þessi próf.

Sturlunarstuðull Tölfræði 2 er gríðarlega hár.

Góðar stundir.


Posted at 05:19 am by doddi
Make a comment

Previous Page Next Page