|
Allt að gerast. Í fyrsta lagi, ég er búinn að eignast nýja frænku. Sunna systir fæddi á dögunum gullfallega stelpu. Hamingjuóskir til Sverige. Í framhaldinu bókaði ég mér flug til Stokkhólmsborgar þann 5. okt. þar sem sjálfstætt mat á afurðinni fer fram, stöðluð próf framkvæmd og niðurstöður kynntar síðar meir eftir eðlilegt ferli. Í öðru lagi, Chuck Cup keppnin í Víðihlíð fór fram síðastliðinn laugardag í roki og slyddu. Þeir keppendur sem höfðu valið sér efnislitla búninga sáu eftir þeirri ákvörðun, nema Valli sem fékk búningastigin. Undirritaður gerði sér lítið fyrir og grýtti staurnum þvert yfir bílastæðið og tók síðan helluna og fleygði henni aftur fyrir haus langleiðina á Flúðir. Undirritaður undirbýr sig vandlega
Eftir að stigin höfðu verið lögð saman eftir þessar 2 greinar kom í ljós að 3 menn deildu þremur efstu sætunum. Dolli tröll var farinn þegar þetta lá fyrir og hafnaði því í 3. sæti. Ég og Óli rauði tókum okkur því til og kepptum í símastauraburði þar sem markmiðið var að ganga sem lengst með staurinn á öxlunum. Óli fór fyrstur eftir að hafa tapað í hlutkesti og setti því viðmiðið. Fór síðan og bætti það og gekk frá staurnum og stóð uppi sem sigurvegari hálandaleika Chuck Cup. Í þriðja lagi, þó svo að ég hafi ekki komist í göngur og réttir eins og vonir stóðu til fékk ég þó að smala. Inn á landareign Víðihlíðar slapp rolla með 2 kindur. Ekki er það hentugt þar sem mikil trjárækt hefur hafist í Víðihlíð og er á viðkvæmu stigi, því gætu rollurnar hæglega skemmt fyrir. Var mannskapurinn því ræstur út til smalamennsku og tók á rás upp holtið á eftir rollunum. Veðrið auðveldaði ekki verkið, stíf norðaustan átt og slydda, en við erum karlmenn og leystum þetta verkefni auðveldlega, ef svo má segja. Óli rauði fann m.a.s. tíma til þess að rífa niður um sig og hlaupa pinnstífur á eftir rollunum, framhaldið er ritskoðað. Í fjórða lagi, ég á að vera að fylgjast með í vinnumarkaði. Kveð að sinni. |
| Doddi sjálfur September 18, 2007 07:30 AM PDT mamma, óþarfi að gera ráð fyrir hinu versta, ég þótti öflugur gangnamaður í Dölunum hér forðum daga. Þess ber einnig að geta að ég gengdi stöðu yfirsmala í Víðihlíð og fórst það verk vel úr hendi, í það minnsta eru rollurnar ekki lengur þarna. | ||
| mor September 18, 2007 05:48 AM PDT mikið er ég glöð að þér skyldi ekki falið að smala afréttinn. það hefði getað byrjað með ósköpum og endað með skelfingu eins og brúðkaupið forðum. | ||
| Doddi sjálfur September 17, 2007 02:47 PM PDT jájá, allavega mátti ráða af stærðinni á þessum skepnum að þetta voru ekki lömb lengur, og svo sannarlega engin lömb að leika sér við, því er það óviðeigandi að kalla þau það. | ||
| Auður September 17, 2007 09:14 AM PDT Hahahaha slapp inn á landeignina rolla með 2 kindur? hahaha ;) en til hamingju aftur með litlu frænku og glæsilegan sigur ;) | ||
| unnar September 17, 2007 07:51 AM PDT Til hamingju með sigurinn. Chuck yrði stoltur... Hvenær ætlum við að fara í Víðihlíð? | ||
| Leave a Comment: |