Entry: Almennt Sep 29, 2007



Ja sælinú.

Lítið hef ég að segja ykkur/þér, en mig langar þó til að segja ykkur frá því að ég fór á tónleika nú nýlega. Sá þar spila Royal Fortune og Benny Crespo´s Gang.

Royal Fortune er hljómsveit sem ég hef ekki séð áður og vissi því ekki við hverju átti að búast en miðað við þá hljómsveit sem kom á eftir átti ég von á kröftugu rokki. Það reyndist þó ekki svo vera. Hljómsveitin leikur lágstemmda músík og notast við hljóðfæri eins og kontrabassa, banjó og fleira. Athyglisverðar pælingar, skemmtileg uppbygging og metnaðarfullur söngur og raddir komu mér skemmtilega á óvart, hvet fólk til að kynna sér þessa hljómsveit nánar hér

Næst á svið voru Benny Crespo´s Gang, þá hljómsveit hef ég séð margoft og er forfallinn aðdáandi. Von er á plötu í október mánuði og Dötti veit alveg hvað ég vil í afmælisgjöf. B.C.G. spilar kröftugt rokk í anda at the drive in og fleiri hljómsveita, hljóðfæraleikur er allur til fyrirmyndar og sat ég hálfdáleiddur og starði á rytmapar hljómsveitarinnar, eins og ég geri reynar alltaf á tónleikum með þeim. B.C.G. getiði kynnt ykkur nánar hér

Nú, í gær var rólegheitakvöld yfir einum bjór, í dag og í kvöld hins vegar verður haldið í Víðihlíðina, Unnar Öskjulærdómsfélagi og íslandsferðafélagi er 25 ára í dag, fær hann sturlaðar stuðkveðjur og hamingjuóskir ásamt því að hópurinn fer í Víðihliðina að samgleðjast með honum. Ánægjulegt að hann hafi viljað eyða þessum degi í sveitinni í góðra vina hópi.

Læt þetta duga að sinni.

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments