|
Jæja, kominn tími á þetta, ætlaði að halda þessu við. Ég fór til Svíþjóðar til að skoða nýtt barn og Svíaríki. Vel hefur tekist til með nýja barnið hjá þeim Magnúsi og Sunnu systur og er stúlkan hin efnilegasta. Júlía stóra systir hennar var spræk og lét frænda sinn lesa fyrir sig bæði á íslensku og sænsku. Þau Maggi og Sunna eru höfðingjar heim að sækja og fór vel um mig á heimili þeirra, allavega kom ég ekki grennri heim. Eyddi einnig miklum fjármunum í föt og Ipod og þarf nú að finna úr því hvernig í fjandanum ég fer að þvi að borga af bílnum í vetur. Núhh, þegar ég kom heim tók við lærdómur (eftir að runnið var af mér, það var fjör í fluginu), og er alltof mikið að gera í heimaverkefnum í þessum helv. valkúrsum, maður hefur ekki tíma til að læra. Jæja... andleysið er algjört, nenni ekkert að skrifa, mun setja inn meistara bloggfærslu innan tíðar, þegar ritandinn er kominn yfir mig. |
| mor October 29, 2007 05:12 AM PDT til hamingju með daginn gullmolinn minn | ||
| Leave a Comment: |