Entry: Í tilefni dagsins Oct 29, 2007



Jæja og já. Nú er ég orðinn 25 ára, kvarteitthundrað, hálfþrítugur.

Í tilefni dagsins mætti ég á réttum tíma í tölfræði 2.

En þar að auki hélt ég heljarinnar partý heima hjá mér á laugardaginn, sendi þau gömlu út í sveit og bauð undarlegri blöndu vinahópa héðan og þaðan í gleðskap. Óhætt er að segja að vel hafi til tekist. Fólk var í feiknafjöri, bondaði og kjaftaði og allir opnuðust enn meir er drykkjuleikur tók völdin. Margar góðar gjafir fékk ég, svosem afmælisköku þar sem einu sinni stóð 25 en það var örlítið máð, tannkrem, búnað til að búa til kertaafsteypu af félaganum, fíla g-streng og margt fleira.

Hæst bar þó gjöf frá stórum hópi fólks, sem, eftir frumkvæði Dötta, gaf mér forláta Godin rafmagnsgítar. Þetta er vönduð græja sem yndislegt er að spila á og kann ég þessum hópi bestu og mestu þakkir. Takk öll!! Þið vitið hver þið eruð. (ég man það ekki nákvæmlega og kortið er heima.... afsakið, skammskamm doddi)

Fyrr um þennan dag hélt Chuck-cup keppni í Kubb, eftir bráðabana og fjölda bjóra stóð undirritaður uppi með silfur.... einhver gaur vann, skiptir ekki máli.

í gær kom svo Berglind systir með man og ómegð í minn uppáhalds mat. En sökum ógnvænlegrar þynnku átti ég erfitt með að borða eins og ég er vanur. Í kvöld eru afgangar thank god.

Að lokum, takk öll fyrir kveðjurnar og allt það, alltaf gott að fá kveðjur og hilsen.

Kveðja: Þórður Ingi Guðmundsson, á ekkert að fara að fullorðnast?

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments